Tannlím
Dentofix duft myndar þægilegt þunnt lag sem heldur gómnum föstum allan daginn. Það hentar best þegar gómurinn er nýlegur og/eða passar vel. Dentofix duft er án bragðefna.
Notkunarleiðbeiningar
Hreinsið góminn vel áður en efnið er notað, helst með gómabursta.
Ekki þurrka góminn eftir hreinsun.
Sáldrið Dentofix duftinu yfir þann flöt gervigómsins sem á að liggja upp við góminn. Ekki á að kreista duftbrúsann heldur skal leyfa efninu að sáldrast létt úr flöskunni yfir flötinn.
Komið gervigómnum fyrir í munninum og þrýstið á hann með fingrum í nokkrar sekúndur.