|
|
Framsækið Lyfjafyrirtæki
Portfarma er framsækið lyfjafyrirtæki sem sérhæfir sig í skráningu og markaðssetningu samheitalyfja. Portfarma er leiðandi á sviði innflutnings, ráðgjafar, markaðssetningar og dreifingar á hágæðalyfjum á Íslandi sem og víðar í evrópu. Það er markmið fyrirtækisins að stuðla að auknum lífsgæðum á Íslandi og bæta hag þess fólks sem þarfnast lyfja til að bæta líðan sína og heilsu.
|
|
Trygg Gæði í Framleiðslu
Til að tryggja gæði í framleiðslu og við geymslu vörunnar vinnur Portfarma náið með ráðgjafarfyrirtæki við mat á lyfjum og framleiðendum. Þetta ráðgjafarfyrirtæki teflir fram hámenntuðum lyfjafræðingum og sérfræðingum með yfirgripsmikla reynslu í framleiðslu lyfja og við skráningu þeirra í Evrópu.
Metnaður okkar felst í því að fullnægja þörfum:
- Viðskiptavina okkar (sjúklinga, heilbrigðisstarfsmanna, lyfsala).
- Starfsmanna okkar.
- Samstarfsaðila okkar (framleiðenda og dreifingaraðila).
- Eigenda
- Samfélagsins
|
|
Fylgir alþjóðlegum stöðlum
Portfarma leggur mikla áherslu á símenntun starfsfólks enda er lyfjageirinn þess eðlis að þekkingin er mikilvægasta aflið.
Það er stefna Portfarma að fylgja alþjóðlegum stöðlum (GMP, GLP ofl.) sem eru samhæfðir öllum vinnureglum í fyrirtækinu.
Endanlega niðurstaða á gæðum og öryggi fæst að lokum hjá lyfjastofnun innan EU sem fjallar um skráningu lyfs og veitir markaðsleyfi fyrir vöruna. |
Ýtrustu Kröfur
Portfarma er markaðsleyfishafi sérlyfja og hafa sérfræðingar fyrirtækisins unnið af kostgæfni við val á samstarfsaðilum við framleiðslu lyfjanna.
Portfarma hefur frá upphafi fylgt ýtrustu kröfum hvað varðar alþjóðlega staðla og fylgt reglum sem settar eru af opinberum aðilum á Íslandi og af lyfjayfirvöldum í Evrópusambandinu. |